Frábærar viðtökur gagnrýnenda á Borgríki 2 í Bandaríkjunum

Borgríki 2, Blóð hraustra manna, er komin á VOD í Bandaríkjunum og hafa undanfarið birst afar jákvæðir dómar um myndina í netmiðlum vestra en Hrafnkell Stefánsson, deildarforseti Handrita/Leikstjórnar er annar handritshöfunda myndarinnar.
Við skoðun umfjallana um Brave Men´s Blood eins og hún hefur verið nefnd á ensku  má glögglega sjá að hún fellur vel að smekk rýnanna. Á  kvikmyndavefnum Death. Movie.Birth. segist gagnrýnandi helst  hafa áhyggjur af því að jafn frambærileg mynd drukkni í þeim hafsjó kvikmynda sem veröldin hefur að bjóða og segir m.a. Borgríki 2 “hremma áhorfandann og halda áhuga hans til hinna harmrænu endaloka”.
Á vefnum Film School Rejects segir að “ánægju vekjandi“sé ekki endilega rétta lýsingin á kvikmyndinni þar sem hún “vekji hjá áhorfendum bæði óánægju og ófullnægju um leið og hún vekji aðdáun”. Gagnrýnandinn kemst því að þeirri niðurstöðu í lokaorðum sínum að myndin sé “sláandi rannsókn á hugsjónum og spillingu sem enginn sleppi undan án þjáningar”.

Unseen Films nefnir það strax í upphafsorðum að hér sé á ferðinni “þétt lítil mynd sem lesendur ættu umvifalaust að bæta á áhorfslista sinn” á meðan Reel News Daily telur að handrit Hrafnkels og Ólafs eigi skilið að hreppa verðlaunagripi og að hann hefði gjarnan viljað sjá myndina á mikilvægum hátíðum á borð við Tribeca og New York Film Festival.

Kvikmyndaskóli Íslands óskar Hrafnkatli og öðrum aðstandendum Borgríkis 2 til hamingju með þessar frábæru viðtökur vestra.