Gleðilegt nýtt ár
Kvikmyndaskóli Íslands óskar landsmönnum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir það liðna.
Árið 2015 hefur verið skólanum, kennurum og nemendum hans gjöfult og ánægjulegt að fylgjast með því hvernig útskrifaðir nemar hafa enn eitt árið sett mark sitt á íslenska kvikmyndagerð. Það er ætlun skólans að gera enn betur í framtíðinni og er nýfrágenginn þjónustusamningur við menntamálaráðuneytið mikil hvatning til góðra verka. Við lítum því björtum augum til ársins 2016 og hlökkum til að starfa með ykkur áfram að því göfuga verkefni að mennta öflugt kvikmyndagerðarfólk.