Tveir nýir deildarforsetar ráðnir til Kvikmyndaskóla Íslands

Tveir nýir deildarforsetar hafa hafið störf við Kvikmyndaskóla Íslands. Þetta eru þau Jóna Finnsdóttir, fyrrv. framkvæmdastjóri LHÍ, sem nú veitir Deild 1, Leikstjórn/framleiðslu forstöðu og Jörundur Rafn Arnarson,  myndbrellumeistari, sem tekur við sem yfirmaður Deildar 2, Skapandi tækni.

 

Jóna og Jörundur eru sannarlega þekktar stærðir í íslenskri kvikmyndagerð, bæði reynsluboltar með víðtæka þekkingu og starfsreynslu.

 

Jóna Finnsdóttir hóf feril sinn hjá RÚV, þar sem hún vann við dagskrárgerð í tæpan áratug áður en hún fór til náms í framleiðslu kvikmynda í í Los Angeles.Síðar lauk Jóna MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík.

 

Jóna rak kvikmyndafélagið Tónabíó, sem m.a. framleiddi myndirnar Tár úr steini og Sporlaust, en Jóna var aðalframleiðandi beggja myndanna. Hún hefur einnig starfað sem framleiðslu- og framkvæmdastjóri við fjöldann allan af kvikmyndum, stuttmyndum og heimildarmyndum, s.s. Ryð og Kaldaljós .

 

Jóna starfaði sem framkvæmdastjóri Listaháskóla Íslands frá stofnun hans árið 1999 til ársins 2013.

 

Nýlega var hún einn framleiðenda heimildarmyndarinnar Latínubóndans. Jóna rekur framleiðslufyrirtækiðog er með verkefni fyrir bíó og sjónvarp í undirbúningi.

 

Jörundur Rafn Arnarson hefur unnið við myndbrellur í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum í yfir 12 ár. Hann hefur starfað fyrir fyrirtæki á borð við og

Hann hefur unnið við kvikmyndaverkefni á Íslandi, í Englandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum undanfarin 10 ár.

 

Meðal mynda sem Jörundur hefur unnið við eru:

Everest, Eiðurinn, Hjartasteinn, Game of Thrones, Fyrir framan annað fólk, Fúsi, Halo: Nightfall, Borgríki 2, Hross í oss, Ófeigur gengur aftur, XL, Djúpið, Contraband, Thor: Legends of Valhalla, Tinker Tailor Soldier Spy, Harry Potter and The Deadly Hallows, Part 2, Tyrannosaur, Rokland, Salt, Clash of the Titans, Where the Wild Things Are, The Good Heart, Réttur, Dagvaktin og

 

Jörundur fékk Edduverðlaun fyrir Bestu brellur í kvikmyndinni Hross í oss og var einnig tilnefndur sama ár fyrir brellur í kvikmyndinni Ófeigur gengur aftur.