Frábær árangur í Cilect stuttmynda samkeppni
CILECT, samtök 130-140 bestu kvikmyndaskóla í heiminum, voru í gær að kynna úrslit í árlegri stuttmyndasamkeppni nemendamynda
Frábær árangur í Cilect stuttmynda samkeppni
CILECT, samtök 130-140 bestu kvikmyndaskóla í heiminum, voru í gær að kynna úrslit í árlegri stuttmyndasamkeppni nemendamynda. Í flokknum leiknum myndum, bárust alls 118 myndir í ár og framlag skólans í þetta sinn var útskriftarmynd Helenu Rakelar, “Bland í poka”.
Það sérstakt ánægjuefni að tilkynna að Kvikmyndaskóli Íslands, þ.e. myndin “Bland í poka”, hafnaði í 17.sæti af 118 . Þetta er næstbesti árangur skólans frá upphafi. Árið 2018 hafnaði útskriftarmyndin “3 Menn” í 14 sæti og árið 2016 hafnaði myndin “Himinn og Jörð” í 20.sæti.
Helen Rakel“Seint hélt ég að ég yrði mjög ánægð með að lenda í 17 sæti í einhverju, en miðað við samkeppnina í Cilect keppninni, þá held ég geti talað fyrir okkur öll sem standa á bak við “Bland Í Poka” og sagt að við séum ótrúlega stolt og ánægð með þennan árangur og svo innilega þakklát öllum þeim sem komu að gerð myndarinnar. “
Friðrik Þór Friðriksson, Rektor Kvikmyndaskólans“Þetta eru sannarlega gleðifréttir að sjá okkur standa svona vel að vígi í keppni með bestu skólum heims og staðfesting á þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað undanfarinn ár hjá skólanum.”