Devaney, kennari KVÍ vann að myndböndum Bjarkar

Á einni viku hefur Björk látið frá sér tvö myndbönd við lög sín af nýjustu plötu sinni Vulnicura. Lögin eru Black lake og Stonemilker og eru bæði myndböndin tekin á Íslandi.

Við í Kvikmyndaskóla Íslands erum stolt af aðkomu kennara skólans, Jonathan Devaney, sem var ljósameistari í báðum tökum en í öðru þeirra naut hann aðstoðar nýútskrifaðs nemanda skólans, Jóns Marinós.

Rétt er að benda áhugasömum að nota Chrome vafrann fyrir 360 gráðu videoið við lagið Stonemilker.