Jimmi Salinas sigraði ljósmyndakeppni KVÍ og NÝHERJA,
Vinningshafinn í ljósmyndakeppni KVÍ og Nýherja var kynntur í gær en hann var að þessu sinni Jimmy Salinas, nemandi í Skapandi tækni á 3. önn.
Eins og áður hefur komið fram hlýtur sigurvegarin vegleg verðlaun í boði Nýherja, Sony RX100 myndavél.
Til gamans má geta að Jimmy hafnaði einnig í öðru sæti með aðra mynd sem hann sendi inn en í þriðja sæti lenti Berglind Róbertsdóttir, leiklistarnemi á 4. önn.
Verðlaunaafhendingin fór fram í gær í húsnæði Nýherja Borgartúni 37 kl. og óskar skólinn sigurvegurum til hamingju með frábærar myndir.
Mynd Jimmi Salinas sem hlaut 2. verðlaun.
Mynd Berglindar Róbertsdóttur hlaut 3. verðlaun