Mikið um að vera í paradísinni

Það er þessi tími ársins. Nemendur sem hafa verið með okkur síðustu 2 ár eru að taka stökkið út í hinn stóra kvikmyndaheim og hafa sýnt útskriftarmyndir sem eru þeirra eigin höfundaverk, í Bíó Paradís þessa vikuna. Þetta eru 4 deildir sem nemendurnir útskrifast frá; Leikstjórn/Framleiðsla, Skapandi tækni, Handrit/Leikstjórn og að lokum leiklist. Að venju er vel mætt á útskriftarsýningar en þetta eru oft verk sem skilja eftir sig svita, blóð og tár enda mikill metnaður að baki.

Nú styttist í stóru stundina en kl. 13.00 útskrifum við þetta hæfileikaríka fólk sem mun án efa hafa áhrif á kvikmyndalandslagið hérlendis sem og erlendis.