Myndir nemanda í KVÍ af íslenskri náttúru vekja athygli netmiðla

Vinsældir vefsins Stuck in Iceland hafa aukist jafnt og þétt og áhugafólk um allt það sem Ísland hefur að bjóða fylgjast þar grannt með.

Nemandi Kvikyndaskóla Íslands vakti athygli vefsins nýlega fyrir myndir og myndbönd af íslenskri náttúru og nú hefur mbl.is bæst í hóp áhugasamra um frábæra vinnu Garðars Ólafssonar á þessu sígilda myndefni. Áhugi Garðars á ljósmyndun kviknaði fyrir um sex árum og leiddi hann í skólann og það má með sanni segja að hann sé á réttri hillu.

http://stuckiniceland.com/south/drone-video-icelandic-natural-wonders/

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/06/09/eldgosid_i_eyjafjallajokli_magnad/