Nemendur vinna á fullu í lokaverkefnum sínum

Nemendur á fyrstu önn Kvikmyndaskóla Íslands héldu áfram í sínu fyrsta námskeiði, TÆK 107, þar sem allar deildir skólans læra undirstöðu kvikmyndagerðar og hófu tökur á sinni fyrstu mynd í skólanum sem þau frumsýna von bráðar.

Nemendur á 2.önn Leikstjórnar og Framleiðslu luku áfanga í dagskrárgerð fyrir sjónvarp með 3.önn Leiklist undir leiðsögn Baldvin Albertssonar með kynningu fyrir gesti úr bransanum ásamt því að fara í listasögu með Lee Lorenzo Lynch. Einnig sátu þau námskeið í Leikstjórn undir leiðsögn Börks Gunnarssonar (Þetta Reddast) með nemendum Handrita og Leikstjórnar. Nemendur á 4.önn fóru í handritsnámskeið undir leiðsögn Huldars Breiðfjörðs (Pabbahelgar, Undir Trénu) ásamt 4.önn Handrita og Leikstjórnar þar sem þau vinna handrit að útskriftarverkefni sínu ásamt því að hefja leikstjórnarkúrs með Hilmari Oddssyni (Kaldaljós, Tár úr Steini) þar sem unnið var áfram með lokaverkefnið þeirra.  Ásamt því sat 4.önn námskeið í stofnun framleiðslu fyrirtækja og umsókna, og samtíma kvikmyndasögu. 

Nemendur á 2.önn Skapandi Tækni, sátu námskeið í kvikmyndatöku undir leiðsögn Björns Ófeigssonar (Gnarr, Latibær) með því hvert og eitt að skjóta stutta mynd sem þau fóru svo með yfir í Klippikúrs undir leiðsögn Davíð Alexander Corno (Kona fer í stríð)  Nemendur 3.annar fóru í námskeið í hljóð eftirvinnslu með Kjartani Kjartassyni (101 Reykjavík, Svartur á Leik), hófu kvikmyndatöku námskeið með Björn Ófeigssyni (Gnarr, Latibær) þar sem þau undirbúa að skjóta sína eigin heimildarmynd og sátu handritanámskeið með Hrafnkeli Stefánssyni (Kurteist Fólk, Borgríki). Nemendur 4.annar fóru í framleiðslu námskeið með 4.önn Handrit/Leikstjórn undir leiðsögn Arnar Benjamíns (A Reykjavik Porno, Þorsti) og undirbjuggu lokaverkefni sitt með leiðbeinanda sínum Ólaf De Fleur (Borgríki, Malevolent) Ásamt því sat 4.önn námskeið í stofnun framleiðslu fyrirtækja og umsókna, og samtíma kvikmyndasögu. 

Nemendur á 2.önn Handrita og Leikstjórnar sátu námskeið í handritsskrifum fyrir sjónvarpsþætti, þar sem þau munu skrifa “pilot” að sínum eigin þætti undir leiðsögn Daggar Mósesdóttur (Höfundur Óþekktur, Me & Bobby Fischer) listasögu með Lee Lorenzo Lynch og sátu námskeið í Leikstjórn undir leiðsögn Börks Gunnarssonar (Þetta Reddast) ásamt nemendum Leikstjórnar ogFramleiðslu. Nemendur á 4.önn sátu námskeið í framleiðslu undir leiðsögn Arnar Benjamíns (A Reykjavik Porno, Þorsti)  ásamt því að hefja leikstjórnarkúrs með Hilmari Oddsyni (Kaldaljós, Tár úr Steini ) Einnig sat 4.önn námskeið í stofnun framleiðslu fyrirtækja og umsókna, og samtíma kvikmyndasögu.  

Nemendur á 2.önn Leiklist sátu námskeið í leiktækni með Rúnari Guðbrandssyni (Svartur á Leik) og hófu námskeið í Raddþjálfun með Þórey sigþórsdóttur (Agnes, Kaldaljós) Nemendur á 3.önn luku áfanga í dagskrárgerð fyrir fyrir sjónvarp með 2.önn Leikstjórn/Framleiðslu undir leiðsögn Baldvin Albertssonar með kynningu fyrir gesti úr bransanum, hófu námskeið í Leiklistarsögu með Rúnari Guðbrandssyni (Svartur á leik) og unnu með leiktækni undir leiðsögn Hannes Óla Ágústssonar (Málmhaus) Nemendur 4.annar sátu námskeið í handritsgerð með Kolbrún Önnu Björnsdóttur (Svartir Englar) , upprifjunar námskeið í raddvinnu með Þórey Sigþórsdóttur (Agnes, Kaldaljós) og svo námskeið í gerð dansmyndbands undir leiðsögn Kolbrún Önnu Björnsdóttur(Svartir Englar) og Rut Hermansdóttur. Einnig fóru þau í námskeið í gerð showreel og æfingar fyrir áheyrnarprufur. Ásamt því sat 4.önn námskeið í stofnun framleiðslu fyrirtækja og umsókna, og samtíma kvikmyndasögu. 

Kínema hélt svo spilakvöld, sitt reglulega “writers room”, dreifði skóla bolunum og nutu pizza sneiða.