Nóg að gera í Kvikmyndaskólanum
Fyrstu annar nemar í skólanum (Leikstjórn/Framleiðsla, Skapandi Tækni, Handrit/Leikstjórn, Leiklist) luku eftirvinnslu á mínútumynd undir leiðsögn og frumsýndu þar með fyrsta kvikmyndaverk sitt á skólagöngunni. Myndirnar voru skemmtilegar og fjölbreyttar, og víst er að það verður spennandi að fylgjast með næstu verkefnum fyrstu annar nemenda.
Fyrsta önn Leikstjórn / Framleiðslu hóf svo tíma í Myndrænni frásögn með ásamt fyrstu önn Handrit/ Leikstjórn. Þriðja önn Leikstjórn/Framleiðslu sat tíma í framleiðslu með ásamt því að nema undir reynda upptökustjóranum Jóni Agli Bergþórssyni í áfanga um fjölkameruvinnslu og skrifa handrit að eigin stuttmynd undir leiðsögn sem þau munu leikstýra í lok annar.
Nemendur á Skapandi Tækni sátu kúrs í klippingu undir leiðsögn þar sem þau klippa meðal annars einstaklingsverkefni sem þau tóku upp í kvikmyndatökunámskeiði. Nemendur á þriðju önn sátu námskeið í kvikmyndatöku með Tómasi Erni Tómassyni (Arctic, Latibær) þar sem þeir munu skjóta sína eigin heimildarmynd ásamt því að sjá um tökur á fjölkameruþætti. Einnig hófu þeir námskeið í myndbrellum undir leiðsögn Sigurgeirs Arinbjörnsonar (Everest, Star Trek: Discovery)
Nemendur á þriðju önn Handrit/Leikstjórn sátu kúrs í aðlögun þar sem þau skrifa handrit að eigin stuttmynd undir leiðsögn sem þau munu leikstýra í lok annar ásamt áfanga í handritum í fullri lengd, þar sem þeir skrifa fyrstu drög að handriti fyrir kvikmynd í fullri lengd með Hrafnkeli Stefánssyni (Kurteist Fólk, Borgríki).
Nemendur á 4.önn sátu einnig við skriftir á handritum í fullri lengd með Hrafnkeli Stefánssyni (Kurteist Fólk, Borgríki), að endurskrifa handrit sitt frá síðustu önn ásamt því að vinna að handriti útskriftarverkefnis síns með handritshöfundnum Huldari Breiðfjörð ( Undir Trénu, París Norðursins)
Nemendur á fyrstu önn Leiklist hófu námskeið í raddbeitingu með Leiktækni með Nemendur í Leiklist á annarri önn sátu námskeið í söng með og leiktækni með Nemendur á þriðju önn leiklist sátu námskeið í leiktækni og túlkun með og leiklistarsögu.
Svo lauk vikunni í Bíó Paradís að venju þar sem allur skólinn fór saman í Kvikmyndasögu.