Sigurvegarar í Facebook-leiknum “Hvar áttu heima í kvikmyndagerð” tilkynntir
Sigurvegarar í Facebook-leik Kvikmyndaskóla Íslands ,,Hvar áttu heima í kvikmyndagerð’’ hafa verið tilkynntir en þeir voru Engelhart Svendsen og Halldóra Hlíf Hjaltadóttir.
Þátttaka í leiknum fór fram úr öllum vonum en 2.200 höfðu áhuga á að vita hvar hæfileikar þeirra gætu helst nýst.
Við sendum Engelhart og Halldóru Hlíf hamingjuóskir en þau hljóta hvor um sig tvo miða á nýjustu mynd Quentin Tarantino, The Hateful Eight. Miðar á sýninguna verða afhentir á skrifstofu skólans í næstu viku.