Skjaldborg kallar eftir umsóknum í átjánda sinn

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina 6.-9. júní. Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir verk til frumsýningar og verk í vinnslu til kynningar á hátíðinni.

Fyrri umsóknarfrestur er 3. mars 2025 og seinni þann 24. mars 2025. Umsóknarform er aðgengilegt í gegnum vef hátíðarinnar https://skjaldborg.is/

Vakin er athygli á því að hægt er að sækja um með hlekkjum á myndir á eftirvinnslustigi með nýjustu útgáfu verksins auk lýsingar á því hvar verkið er statt og áætlun um verklok.

Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir og hefur það að markmiði að styðja við íslenska heimildamyndagerð. Hægt er að sækja um í tveimur flokkum, frumsýning á heimildamynd eða verk í vinnslu.

Þær íslensku heimildamyndir sem frumsýndar eru á hátíðinni keppa um verðlaunin Einarinn, áhorfendaverðlaun sem hafa verið veitt frá upphafi, og tvenn dómnefndarverðlaun; myndir sem eru 40 mínútur og lengri keppa um Ljóskastarann og 39 mínútur og styttri keppa um Skjölduna.

Verk sem eru gjaldgeng til frumsýningar 2025 þurfa að uppfylla eftirfarandi tvö skilyrði (1) og (2):

1. Heimildamyndir sem uppfylla eitt af eftirfarandi (mynd þarf ekki að uppfylla öll þrjú atriðin):

- Teljast íslensk framleiðsla (framleiðslufyrirtækið og framleiðandinn teljast aðalframleiðandi) 

- Leikstjóri er íslenskur eða með lögheimili á Íslandi. 

- Verkið er á íslensku eða hefur íslenska menningarlega eða samfélagslega skírskotun

2. Heimildamyndir sem ekki hafa verið sýndar opinberlega á Íslandi og munu ekki verða sýndar áður en Skjaldborg þess árs er lokið. Opinberar sýningar á íslenskum vettvangi teljast til sýninga í kvikmyndahúsum, kvikmyndahátíðum, sjónvarpi, opnum vefsvæðum eða öðrum miðlum. Sýningar á vegum skólastofnana sem sýna afrakstur náms í kvikmyndagerð teljast ekki til opinberra sýninga. Lokaðar sýningar fyrir aðstandendur mynda teljast ekki til opinberra sýninga. Athugið að heimildamyndir sem hafa verið sýndar opinberlega erlendis teljast gjaldgengar.

Hægt er að sækja um þátttöku fyrir erlendar heimildamyndir með íslenskum meðframleiðendum og stjórn mun fara sérstaklega yfir þær umsóknir og meta gjaldgengi.

Nánari upplýsingar á www.filmfreeway.com/Skjaldborg

www.skjaldborg.is

www.facebook.com/skjaldborg.hatid.islenskra.heimildamynda

www.instagram.com/skjaldborg_heimildamyndahatid/