Stuttmyndagerð fyrir stelpur á framhaldsskólaaldri. 4-18. ágúst
Dagana 4.-18. ágúst verður WIFT á Íslandi í samstarfi við Kvikmyndaskóla Íslands og RIFF með sumarnámskeið í stuttmyndagerð fyrir stelpur á framhaldsskólaaldri. Þátttakendum verður skipt í tvo aldurshópa, 15-17 ára og 18-20 ára en námskeiðið er haldið til að bregðast við skýrslu menntamálaráðherra, úttekt á stöðu kynja og þátttöku í félagslífi framhaldsskólanema.
„Þar kom m.a. fram að myndbandaklúbbar framhaldsskólanna eru í langflestum tilvikum fullskipaðir strákum sem framleiða myndbönd sem eru oftar en ekki mjög karllæg.“ segja þær Ása Helga Hjörleifsdóttir og Dögg Mósesdóttir hjá WIFT og bæta við:
„Við hjá WIFT teljum að þetta sé undirrót þess mikla kynjahalla sem hefur ríkt í íslenskri kvikmyndagerð og höfum þess vegna ákveðið að leggja sérstaka áherslu á stelpur í þessum aldurshóp.“
Hægt er að skrá sig fram að fyrsta degi námskeiðsins og enn eru nokkur pláss laus. Þátttakendum verður skipt í tvo aldurshópa eins og áður segir, stelpur fæddar 1998-2000 annarsvegar og hinsvegar þær sem fæddar eru 1995-1997.
„Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði kvikmyndagerðar og því lýkur með gerð stuttmyndar“
Þannig munu allir þáttakendur í lok námskeiðsins hafa tekið þátt í að skrifa, framleiða, leikstýra, skjóta og klippa eina stuttmynd. Myndirnar verða svo sýndar við hátíðlega athöfn á RIFF í haust en RIFF verður með sambærilegt námskeið á hátíðinni fyrir stelpur á grunnskólaaldri. Sumarnámskeiðið verður haldið í húsakynnum Kvikmyndaskóla Íslands að Grensásvegi 1 og eru kennarar kvikmyndagerðarkonurnar Ása Helga Hjörleifsdóttir og Dögg Mósesdóttir.
Námskeiðið skiptist í eftirfarandi kennslustundir/daga:
- ágúst: Handritsgerð og myndræn frásögn
- ágúst: Leikstjórn og framleiðsla
- ágúst: Kennsla á myndavélar / tæknilegur undirbúningur fyrir tökur
11.12., og 13. ágúst: Tökur á stuttmyndum
14., 17. og 18. ágúst: Klipping og önnur eftirvinnsla
Yngri hópurinn er fyrir hádegi og eldri hópurinn er eftir hádegi en námskeiðið kostar 20.000 krónur.