Þórður Pálsson með stuttmynd í Palm Springs
Stuttmynd Þórðar Pálssonar sem útskrifaðist árið 2012 úr Leikstjórn/framleiðslu frá Kvikmyndaskóla Íslands, BROTHERS hefur verið valin til sýninga á alþjóðlegu stuttmyndahátíðinni í Palm Springs.
Þórður hefur nýlokið MA gráðu í kvikmyndagerð frá National Film and Telivision School í Beaconsfield og er stuttmyndin Brothers útskriftarmynd hans þaðan.
Klapptré tók spjall á Þórði í marslok þar sem hann m.a. greindi frá undirskrift samnings við bresku umboðsskrifstofuna Sayle Screen og um þessar mundir vinnur að handriti sinnar fyrstu bíómyndar ásamt fyrrum samnemanda sínum.
Hér má lesa viðtalið við Þórð: klapptre.is/2015/03/26/10722/
Stikla: