Tökur á útskriftarmyndum hafnar og það er tónlist í loftinu
Fyrsta önn Leikstjórnar og Framleiðslu sátu námskeið í framleiðslu með Hlín Jóhannesdóttur (Bokeh, Svanurinn) og leikstjórn þar sem er unnið með leikaravinnu undir leiðsögn Þorsteins Bachman (Lof mér að falla, Vonarstræti) ásamt fyrstu önn Handrita og Leikstjórnar. Þriðja önn fór í SAM, þar sem þau fengu tækifæri til að vinna með öðrum nemendum í tökum ásamt því að undirbúa stuttmynd sem þau munu taka upp í lok annarinnar.
Nemendur á fyrstu önn Skapandi Tækni sátu sinn fyrsta kúrs í klippingu undir leiðsögn Davíðs Alexander Corno (Undir Halastjörnu, Kona fer í stríð) ásamt kúrs í myndbreytingu undir leiðsögn Sigurgeirs Arinbjarnarsonar (Everest, Star Trek Discovery). Nemendur á annarri önn sátu kúrs í hljóðvinnslu með Kjartani Kjartanssyni (Sódóma Reykjavík) og einnig námskeið myndbreytingu þar sem þau vinna með “after effect” undir leiðsögn Sigurgeirs Arinbjarnarsonar (Everest, Star Trek Discovery) og námskeið í leikmyndagerð með Ari Birgir Ágústsson (Hjartasteinn, Grafir og Bein). Þriðja önn tók fyrsta hluta sérhæfingar – þar sem hver og einn nemandi velur sérgrein og fær útlutaðan leiðbeinanda til að kynna sér það fag ásamt SAM, það sem þau fengu tækifæri til að vinna með öðrum nemendum í tökum.
Fyrsta önn Handrita/Leikstjórnar sátu sitt fyrsta námskeið í handritum í fullri lengd undir leiðsögn Hrafnkels Stefánssonar (Kurteist Fólk, Borgríki) þar sem þau hefja vinnu að handriti sem þau munu vinna áfram með næstu annir, og leikstjórn þar sem er unnið er með leikaravinnu undir leiðsögn Þorsteins Bachman (Lof mér að falla, Vonarstræti) ásamt fyrstu önn Leikstjórnar og Framleiðslu. Þriðja önn lauk þriðja námskeiði sínu í handritum í fullri lengd, með Hrafnkeli Stefánssyni (Kurteist Fólk, Borgríki) þar sem þau skrifuðu fyrstu drög að handriti í fullri lengd. Nemendur á fjórðu önn hluku tökum á útskriftar myndum sínum sem verða frumsýndar í lok annar.
Nemendur á fyrstu önn Leiklistar luku námskeiði í raddbeitingu og söng með Þórunni Ernu Clausen (Lói) með glæsilegri kynningu, sátu einning kúrs í leik og hreyfingu þar sem unnið með líkamann í tjáningu með Guðmundi Elíasi Knudsen, og Leiktúlkun með Rúnari Guðbrandssyni (Svartur á leik, XL). Nemendur á annari önn sátu námskeið í raddbeitingu hjá Þóreyju Sigþórsdóttur (Agnes, Kaldaljós) og luku námskeiði í leiktækni með Rúnari Guðbrandssyni (Svartur á leik, XL) með kynningu, og fóru í leik og hreyfingu með Álfrúnu Örnólfdóttur (Dís) þar sem unnið var með líkamann í yoga, ásamt þriðju önn. Þriðja önn hóf svo kúrs í leik og rödd með Þórunni Ernu Clausen (Lói) þar sem þau hófu vinnu að söngleik sem þau munu skrifa og setja á svið í lok annar.
Kínema, nemendafélag Kvikmyndaskóla Íslands, bauð upp á Handrita vinnustofu og Kareoke kvöld á þriðjudeginum og Spilakvöld á fimmtudeginum.
Vikunni lauk svo í kvikmyndasögu í Bíó Paradís að vanda.