Velgengni Hrúta: Fjöldi nemenda kom að gerð myndarinnar

Velgengni Hrúta, kvikmyndar Gríms Hákonarsonar, hefur ekki farið fram hjá neinum kvikmyndaáhugamanni. Það er einstaklega ánægjulegt að geta þess að 12 fyrrverandi nemendur Kvikmyndaskóla Íslands unnu ýmis störf við gerð myndarinnar. Þannig áttum við fulltrúa meðal leikara, í leikstjóradeild, framleiðsludeild, myndatökudeild og leikmyndadeild. Við óskum Þorsteini Gunnari Bjarnasyni, Önnu Sæunni Ólafsdóttur, Vigfúsi Gunnarssyni, Antoni Smára Gunnarssyni, Guðjóni Hrafni Guðmundssyni, Margreti Völu Guðmundsdóttur, Jóni Þór Jónssyni, Karli Pálssyni, Alexander Erlendssyni, Jóni Gauta Jónssyni, Helgu Björg Gylfadóttur og Valgerði Sigurðardóttur hjartanlega til hamingju með vel unnin störf. Já, og til hamingju, Grímur og Grímar með Hrúta og gott starfsfólk.